Við gerum verktilboð í þá steina sem þér lýst vel á. Því næst þarf að staðfesta tilboðið með 50% innágreiðslu. Við staðfestingu á tilboði útbúum við verkmöppu, tökum frá efni og skráum þig í kerfið hjá okkur.
Hægt er að bóka mælingu þegar innrétting er komin upp og í lokastöðu. Mælingarmaður hefur samband við þig innan vinnutímabilsins. Þó að mælingamanni seinki, seinkar ekki uppsetningu. Ágætt er að vera komin með vask og helluborð á verkstað þegar mælingamaður kemur.
Þegar mælingamaður klárar mælingar fer verkið í framleiðsluferli. Við vinnum alla steinana sjálfir til að forðast öll mistök. Unnið er út frá áætlunum sem geta tekið breytingum dag frá degi. Ef að einhverjar breytingar eiga sér stað sem snýr að framleiðslu verksins þarf að tilkynna tímanlega.
Unnið er út frá áætluðum uppsetningadögum sem getur tekið breytingum. Við staðfestum uppsetningu með lágmark sólarhrings fyrirvara. Ef eldri borðplötur eru á innréttingu er ágætt að fjarlægja þær fyrir uppsetningu, einnig getum við annast slíkt gegn gjaldi. Þegar uppsetningu líkur þarf að leyfa 24 tímum að líða áður en notkun hefst.